ég sver að aldrei hafið þið heyrt þessa sögu fyrr.......
einu sinni við fallega tjörn var lítill andarungi sem gekk undir nafninu Gosi
ekki vegna þess að hann var úr tré heldur vegna þess að þegar hann laug þá stækkaði stélið hans hraðar er gangur náttúrunnar var
og því miður fyrir hann að sögn hinna eldri andarkynslóðar þá laug hann ósköp mikið hann var nefnilega pínu púki í sér og var sama um afleiðingar lyganna
en ekki vorkenna honum ofmikið því hann var ekki með hin svokölluðu "LitlaLjótaAndarungansHeilkennin"
hann var óskaplega fríður ungi
en svo einn daginn þá var stélið hans orðið svo stórt að þegar hann ætlaði að skella sér í tjörnina á heitum sumardegi (hann bjó nefnilega ekki á íslandi...) þá gekk það ekki því hann datt alltaf aftur fyrir sig vegna stóra stélsins og að sökum þess og því að hann var ekki það klár að snúa sér bara við svo hann myndi detta í tjörnina þá eyddi hann heitum sumardögum liggjandi á bakinu nýtandi ímyndunaraflið til að sjá hinar ýmsu furðuverur í skýjunum
og sem betur fer þá var hann með svakalegt ímyndunarafl, því án þess hefði hann aldrei getað séð ský á heiðskýrum himninum á heitum sumardegi.......
já ég er mamma dagsins held að ég þurfi kríli til að allt fari afstað svona umhverfislega séð
er semsagt að passa inga björn frá og með gærkvöldi til og með mánudags og það sem ég áorkaði þessa 6 klukkutíma sem yndið var á leikskóla
í gærkvöldi tók ég til í herberginu mínu og stofunni og skúraði síðan herbergið
svo í morgun þegar skotti var á leikskólanum þá gerði ég ° skúraði stofuna ° setti í uppþvottavélina ° þreif bílinn að innan sem utan ° og náði að láta mér leiðast í ágætan tíma
já fannst þetta miklu meira í morgun
svo var náð í krúttið og hitt krúttið sem er bróðir hans og ég fékk loksins tölvuna mína aftur næsssssss
svo var ég algjör húsmóðir og keypti í matinn og fékk að heyra svona þúsund sinnum í búðinni "má ég fá þetta!"
og á ég að segja ykkur hvað ég sakna mest af öllu núna
að hlusta á herra handsome syngja þegar ég er að fara að sofa, man bara engan vegin hvar ég setti diskinn með prinsinum
en sem og fyrri daga þá gerði ég eitthvað svaka stúpító í morgun en man bara engan vegin hvað það var
en það kemur vonandi síðar,
komin tími til að undirbúa kvöldmatinn hér á þessum bæ
já ég tek hattinn niður fyrir ykkur sem leggið leið ykkar hér inn af og til þó að ekkert sé að gerast á blogginu bíðið þarf víst fyrst að setja hann á kollinn ok komið
en bloggleysið er ekki aðeins leti minni að kenna, heldur einnig þeirri ástæðu að tölvan mín vill ekki kveikja á skjánum og ég er að bíða eftir laugardeginum svo ég geti farið með hana í viðgerð, en þá er fríhelgi og pökkuð dagskrá með rósu minni
en já talandi um rósina þá eins og hún nefndi í kommentinu hér á fyrri færslu þá voru umræður miklar um mann er kenndan er við gaz og þáttinn hæðina það byrjaði allt á því að rósa sagði mér að hún hefði kosið unga parið í hæðinni og ég var ekki mikið fan hjá þeim enda fannst mér þau ferlega leiðinleg og barnaleg
svo dró hún fram spaðann og sagði fögur orð manninn jakk gaz....... finnst ekkert heillandi við hann en hún og berglind eru alveg að fíla kroppinn
eins og ég sagði við rósu þá er allt sem er öfgakennt er ógeðslegt og stend ég alveg föst á því
en að skemmtilegu þá var ég að horfa á fyndna breska grínmynd með ekta breskum húmor hot fuzz hahhaahaahaha
og eina sykursæta mynd sem er ferlega fyndin enchanted, svo krúttilega sæt og fyndin mynd must have it, týpiskt disney mynd sem halló gellur eins og ég fýla í botn hahahhaa
en ég heyrði kútinn hennar rósu tala í gær, hann sagði dho dhi zli ttho gngg húmoristi þar á ferð
en já gott í bili er það ekki, þarf að fara að spila smá sudoku til að þjálfa herra heila
do sidanija auf wiedersehen a presto do zobaczenia