snilldin
já sælt veri fólkiðég er búin með fyrsta kvöldið mitt í módelteikningu og verð ég bara að segja að mér gekk mun betur en ég átti von á

hélt að fyrsta kvöldið væri bara undirstöðuatriði og fræðsla þar sem þetta er byrjanda hópur en neinei, fyrsta myndin var að nöktu módeli og við höfðum 20 mínútur til að teikna það gróflega upp til að læra hlutföllin svo voru þau öll metin og þá fengum við 5 mínútur auka til að lagfæra það sem þurfti
og ég er nú bara búin að læra alveg helling finnst mér

get ekki beðið eftir næsta tíma, en berglind er búin að bjóðast til að vera módelið mitt heima þar sem hún er rúmliggjandi eftir fótbrot, greyið kellingin, en hún neitar hinsvegar að vera nakin, hrmpf hehe

en varð bara að deila þessu með ykkur þar sem ég er bara úper spennt fyrir þessu öllu saman
do sidanija
auf wiedersehen
a presto
19. janúar 2009 klukkan 23:45
Bryndís
Bryndís
