sálarvíma
já vá, er alveg að missa mig hérna í sálarlögunum
búin að breyta stofunni mér til mikillar hamingju, alltíeinu er komið dansgólf fyrir framan sjónvarpið
held að það sé fullkomið að fá sér nintendo wii núna

en löng og brjáluð vinnuhelgi að baki, vann fyrir allann peninginn þessa helgina, ójá

fólk á fullu að versla jólagjafirnar inn núna og held að þetta verði svona alveg til jóla
svo er ég búin að vera að prjóna núna á fullu eftir að hafa sleppt því í næstum 2 vikur, hvað er í gangi
en ég er alveg að verða hálfnuð með stykkið og hlakka alveg ferlega til að sjá útkomuna

en þessi sálarlög láta mann langa á almennilegt sálarball og enn langar mig svakalega í leikritið þeirra sól og máni á dvd, er enn svekkt yfir því að það kom ekki á dvd, hrmpf

en jæja það er kominn lúllutími því á frídegi mínum fæ ég ekki að sofa út heldur mæti ég til tannlæknis klukkan 10
það væri nú ekkert svekkjandi ef þetta væri ferð til dr. handsome en nei þetta er bara same old gamli tannlæknirinn minn
do sidanija
auf wiedersehen
a presto
01. desember 2008 klukkan 00:59
Bryndís
Bryndís
Herru ef ţú vilt fá ţér d. Handsome ţá talađu viđ Ernu hún er víst međ rosa hot tanlćkni ;) hehehehe.....