hversu gömul er ég orđin

já ég er orðin gömul, mér leið áðan svipað og þegar mamma fer á netið
clueless.............

ég fór semsagt í 10 11 áðan og keypti mér rándýran sígarettupakka og þurfti að bíða eftir miða og svo rétti afgreiðslumaðurinn mér miðann og afganginn
og þá benti ég honum á að mig vantaði ennþá sígarettupakkann og þá sagði hann mér að ég færi með miðann í sjálfsalann fyrir framann afgreiðslukassann
og ég clueless og undrandi labba að kassanum og er að reyna að láta miðann renna í vélina, þá kemur drengurinn og segir mér að ég þurfi að snúa miðanum hinseginn og skanna strikamerkið og svo þegar það er búið þá dettur réttur sígarettupakki niður, svona eins og í kóksjálfsala

vá tæknin er komin framúr mér held ég

en á morgun er árshátíð hagkaupa og það verður snilldardjamm að sjálfsögðu
biggi litli frændi kemur með og að sjálfsögðu verður erna, rósa og sesselja á svæðinu ásamt mér og berglindi
ég er allavegana orðin svo gömul að "litla" frænda langar að koma með mér á árshátíð hehe

en nóg komið, kassarnir fyrir krakkana nánast tilbúnir og fer ég og lilja með þá á morgun, mikil spenna að fara með þá

en ég er farin að hafa fötin mín til fyrir morgundaginn, held ég þurfi að þvottast eitthvað örlítið

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
07. nóvember 2008 klukkan 23:51
Bryndís

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Bryndís
  • Stađur: Reykjavík
  • Kyn: kvk

Innskráningar kubbur