02febrúar

enn er

lífið mitt algjör snilld Laughing

var að klára 3ja kvöldið í módelteikningu og þetta verður alltaf skemmtilegra ef eitthvað er Cool

en það er nú margt líka annað að gerast.....

reyndar nei, það er ekkert annað að gerast nema það að mig langar alltaf meir og meir að fá mér mína eigin íbúð, maður er nú að verða svo gamall Undecided

en já vildi bara rétt láta vita af mér hérna svo þetta blogg deyi ekki út alveg strax

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
02. febrúar 2009 klukkan 22:16
Bryndís
2 athugasemdir
19janúar

snilldin

já sælt veri fólkið

ég er búin með fyrsta kvöldið mitt í módelteikningu og verð ég bara að segja að mér gekk mun betur en ég átti von á Wink

hélt að fyrsta kvöldið væri bara undirstöðuatriði og fræðsla þar sem þetta er byrjanda hópur en neinei, fyrsta myndin var að nöktu módeli og við höfðum 20 mínútur til að teikna það gróflega upp til að læra hlutföllin svo voru þau öll metin og þá fengum við 5 mínútur auka til að lagfæra það sem þurfti
og ég er nú bara búin að læra alveg helling finnst mér Cool

get ekki beðið eftir næsta tíma, en berglind er búin að bjóðast til að vera módelið mitt heima þar sem hún er rúmliggjandi eftir fótbrot, greyið kellingin, en hún neitar hinsvegar að vera nakin, hrmpf hehe Laughing

en varð bara að deila þessu með ykkur þar sem ég er bara  úper spennt fyrir þessu öllu saman

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
19. janúar 2009 klukkan 23:45
Bryndís
3 athugasemdir
18janúar

jey loksins

já loksins lét ég verða að því, ég skráði mig á námskeið í módelteikningu

byrja á morgun og verð næstu 14 mánudagskvöld að æfa snilli mína í að teikna líkamann, parta hans og vöðva, hlakka mega til

svo fór ég í verkfæralagerinn í dag og keypti fullt af dóti til að byrja á næstu listaverkum mínum Laughing

en vá hvað aldurinn er farinn að segja til sín, ég er orðin svo svaka þreytt á kvöldin, gamla fólkið fer svo snemma að sofa hehe

en verð að fara að koma mér í háttinn

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
18. janúar 2009 klukkan 23:16
Bryndís
1 athugasemd
05janúar

hjálp!!!!!!!!!!!!!!

já nú verðið þið að hjálpa mér

ég man ekki hver og hvenar og afhverju var sagt við mig nýlega
"ætlaru ekki að blogga um þetta?"

hver vill muna þetta fyrir mig

do sidanija
auf wiedersehen
a presto

ps. gleðilegt nýtt ár Laughing
05. janúar 2009 klukkan 00:16
Bryndís
2 athugasemdir
01desember

sálarvíma

já vá, er alveg að missa mig hérna í sálarlögunum Cool

búin að breyta stofunni mér til mikillar hamingju, alltíeinu er komið dansgólf fyrir framan sjónvarpið
held að það sé fullkomið að fá sér nintendo wii núna
Wink

en löng og brjáluð vinnuhelgi að baki, vann fyrir allann peninginn þessa helgina, ójá
Money mouth
fólk á fullu að versla jólagjafirnar inn núna og held að þetta verði svona alveg til jóla

svo er ég búin að vera að prjóna núna á fullu eftir að hafa sleppt því í næstum 2 vikur, hvað er í gangi
en ég er alveg að verða hálfnuð með stykkið og hlakka alveg ferlega til að sjá útkomuna
Sealed

en þessi sálarlög láta mann langa á almennilegt sálarball og enn langar mig svakalega í leikritið þeirra sól og máni á dvd, er enn svekkt yfir því að það kom ekki á dvd, hrmpf
Cry

en jæja það er kominn lúllutími því á frídegi mínum fæ ég ekki að sofa út heldur mæti ég til tannlæknis klukkan 10
það væri nú ekkert svekkjandi ef þetta væri ferð til dr. handsome en nei þetta er bara same old gamli tannlæknirinn minn

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
01. desember 2008 klukkan 00:59
Bryndís
2 athugasemdir
24nóvember

jahá

jáhá, allir að verða svo fullorðnir

og svo jólin að koma, ég get ekki beðið, núna byrjar svaka vinnutörn en jólin koma eftir það og það er það sem ég get ekki beðið eftir, vona að jólin verða hvítust í heimi :)

svo eru berglind, björg og biggi að fara til jú ess and ei
farin að verða soldið abbó en ég fer bara seinna

hvað get ég sagt meir, ég er byrjuð að prjóna og mér gengur svona upp og ofan með það, þarf greinilega mikla æfingu í þessu

svo er ég farin að djamma svakalega lítið en ég ákvað að skella mér í boði diddu á djamm á laugardaginn, en hún átti miða á skímó, svo borguðum við okkur inná gott í kroppinn partý og bjór á meðan til var, það dugði fyrir mig, en ballið var ekki eins skemmtilegt og þegar við skelltum okkur á selfoss, það var snilld

en já, hef ekkert að blogga um þannig að ég segi bara eins og vanalega

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
24. nóvember 2008 klukkan 21:56
Bryndís
2 athugasemdir
08nóvember

svo gömul en samt svo ung

já er ekki týpiskt að þegar ég er nýbúin að blogga um hvað ég er gömul að ég skreppi í ríkið og sé spyrð um skilríki????

jú það er svo týpiskt að það raunverulega gerðist, fór áðan að kaupa gin í ríkinu og borgaði í cash og þ
á segir afgreiðslumaðurinn sem ég held að hljóti að vera yngri en ég:
ertu með skilríki vinan?
og ég alltaf jafn hissa, segi já og rétti honum skilríkin
og hann varð svo kjánalegur þegar hann skoðaði þau að hann þakkaði bara fyrir og brosti hehehehe
Cool

varð bara að láta ykkur vita um klemmuna sem ég er í milli þess að vera gömul og ung
Wink

en eitt enn, ég er búin að skila kössunum fyrir börnin úti og það var ekkert smá gott að birtast þarna með "nokkra" pakka, en ég og lilja gull fórum saman og vorum þá með 16 kassa, svo öflugar
Laughing

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
08. nóvember 2008 klukkan 14:23
Bryndís
3 athugasemdir
07nóvember

hversu gömul er ég orðin

já ég er orðin gömul, mér leið áðan svipað og þegar mamma fer á netið
clueless.............

ég fór semsagt í 10 11 áðan og keypti mér rándýran sígarettupakka og þurfti að bíða eftir miða og svo rétti afgreiðslumaðurinn mér miðann og afganginn
og þá benti ég honum á að mig vantaði ennþá sígarettupakkann og þá sagði hann mér að ég færi með miðann í sjálfsalann fyrir framann afgreiðslukassann
og ég clueless og undrandi labba að kassanum og er að reyna að láta miðann renna í vélina, þá kemur drengurinn og segir mér að ég þurfi að snúa miðanum hinseginn og skanna strikamerkið og svo þegar það er búið þá dettur réttur sígarettupakki niður, svona eins og í kóksjálfsala

vá tæknin er komin framúr mér held ég

en á morgun er árshátíð hagkaupa og það verður snilldardjamm að sjálfsögðu
biggi litli frændi kemur með og að sjálfsögðu verður erna, rósa og sesselja á svæðinu ásamt mér og berglindi
ég er allavegana orðin svo gömul að "litla" frænda langar að koma með mér á árshátíð hehe

en nóg komið, kassarnir fyrir krakkana nánast tilbúnir og fer ég og lilja með þá á morgun, mikil spenna að fara með þá

en ég er farin að hafa fötin mín til fyrir morgundaginn, held ég þurfi að þvottast eitthvað örlítið

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
07. nóvember 2008 klukkan 23:51
Bryndís
Engin athugasemd
03nóvember

ussss

ekki segja neinum en ég er komin með nýjan síma, hef alveg fengið nóg af sony ruglinu, er nú komin með nokia og verð á næstu dögum komin í nova, þannig að endilega drífið ykkur þangað þannig að ég hringi frítt í ykkur alla tvo hehe

svo verður árshátíð á laugardag og svaka fjör er garentíað eða hvernig sem þetta ætti að vera skrifað

ég hringi í ykkur þegar þið eruð komin í nova hehe

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
03. nóvember 2008 klukkan 22:51
Bryndís
1 athugasemd
26október

styttist í jólin

já það styttist hratt í jólin og ég skal segja ykkur hvað ég gerði í kvöld
ég pakkaði inn 5 skókössum af 8 til að senda í kfum og kfuk sem jól í skókassa
á reyndar eftir að redda flestu í kassana en maður er allavegana byrjaður að setja pappír um kassana
mæli ég með að allir geri þetta, getið kannað þetta á skokassar.net

en fyrir utan að pakka skókössum inn þá leit ég við hjá rósu í dag og elís er alltaf jafn hress drengur, algjör snúlli eins og öll börn

vildi bara deila þessu með ykkur
Laughing

do sidanija
auf wiedersehen
a presto
26. október 2008 klukkan 01:18
Bryndís
Almennt
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Bryndís
  • Staður: Reykjavík
  • Kyn: kvk

Innskráningar kubbur